Heilsa og útlit, Hlíðasmára 17, er fjölbreytt heilsulind þar sem vellíðan skiptir mestu máli. Heilsulindin sérhæfir sig meðal annars í sogæðameðferðum með Weyergans heilsutækjum.
Sandra Lárusdóttir hefur rekið Heilsu og útlit í sjö ár. Hún er sérmenntuð í meðferðum með heilsutæki frá Weyergans, sérstaklega sem snýr að sogæðameðferðum sem eru hreinsandi fyrir líkamann og draga úr bólgum.
Meðal þeirra tækja sem Heilsa og útlit bjóða upp á er VacuSport en Sandra segir að hægt sé að minnka bjúgmyndum mjög hratt í tækinu. „Tæknin með VacuSport var upphaflega þróuð til að koma í veg fyrir blóðrásarvandamál hjá geimförum sem vinna í þyngdarlausu umhverfi. Þetta er taktfast þrýstings- og lofttæmisnudd á æðakerfinu sem stóreykur blóðflæði í æðum og vöðvum þannig að svæði, sem hafa orðið fyrir meiðslum, jafna sig mun fyrr. Með þessari meðferð fær líkaminn aukið súrefni,“ útskýrir Sandra. „Við vorum að selja okkar fyrstu Vacusport vél til sjúkraþjálfunarmiðstöðvarinnar Endurheimt sem ég veit að á eftir að slá í gegn hjá þeim,“ segir hún.
Það er góður hiti í klefanum og fólki líður mjög vel í honum. fréttablaðið/ernir
„Meðferðin kemur líkamanum í betra form og bætir heilsuna með því að hraða endurhæfingu og endurnýjun þeirra svæða sem þurfa á því að halda. Meðferðin hefur sannað sig gegn langvarandi verkjum eins og gigt, liðavandamálum og skertu blóðflæði,“ segir hún. „Fólk kemur til okkar í nokkur skipti og það er ótrúlegt að sjá áhrifin. Þetta er stundum eins og kraftaverk.“
Margvíslegar meðferðir
„Við erum örugglega ein stærsta tæknistofa á landinu þegar kemur að heilsu og útliti. Við bjóðum ekki einungis sogæðameðferð heldur einnig vandaðar andlitsmeðferðir auk meðferðar fyrir appelsínuhúð. Við erum umboðsmenn snyrtivörumerkisins Casmara sem er viðurkennt fyrir vandaðar vörur og meðferðir. Við erum í samstarfi við snyrtistofuna á Garðatorgi sem býður upp á örnálameðferð sem hentar vel yfir vetrartímann ásamt ávaxtasýrumeðferð.
Þá get ég nefnt medical tattoo og ég vinn við að gera vörtubaug eftir uppbyggingu brjósta eða brjóstaminnkun og litar í ör svo þau verða minna áberandi,“ segir Sandra sem er lærður Medical tatto sérfræðingur.
„Loks erum við með tannhvíttun,“ segir hún og bætir við: „Síðan eru það vítamínin okkar, Fitline, en við veitum fólki ráðgjöf næringarfræðings um töku á þeim,“ segir hún. „Við erum alltaf að bæta við þjónustuna og erum að fá ljósabekk til okkar en það hefur mikið verið beðið um hann svo ég ákvað að láta slag standa og tók einn bekk inn sem er væntanlegur í byrjun desember,“ segir Sandra og bætir við að það sé fólk á öllum aldri sem leiti til Heilsu og útlits.
Tækin sem Heilsa og útlit bjóða upp á eru öll viðurkennd heilsutæki sem hafa reynst afar vel og fólk finnur mikinn mun á sér eftir meðferðina.
Mikil eftirspurn
„Verndarhjúparnir, sogæðameðferðir og andlitsmeðferðirnar frá Casmara eru að slá í gegn hjá okkur og sömuleiðis tannhvíttunin. Til okkar kemur fólk með alls kyns vandamál, íþróttamenn, sykursjúkir, fólk með vefjagigt, bjúgsöfnun og þeir sem eru með lélegt blóðflæði. Sömuleiðis kemur fólk sem nýlega hefur gengist undir aðgerðir, meðal annars þeir sem hafa verið í gifsi eftir brot eða aðgerðir á hné eða mjöðmum. Það er algengt erlendis að sjúkraþálfarar, læknar eða aðrir þeir sem meðhöndla fólk með skert blóðflæði nýti VacuSport tækin enda eru áhrifin ótrúleg.
Verndarhjúparnir sem við erum með og hjálpa líkamanum að slaka á öllum vöðvum eru líka mjög vinsælir og við erum að bæta við okkur fleiri tækjum og eigum von á þeim fljótlega. Slíkir hjúpar ættu að vera til á öllum heilsustofnunum, þeir veita hita, slökun og nudd, styrkja ónæmiskerfið, bæta svefn og hreinsa hugann.
Vacusport var fyrst þróað fyrir geimfara. Tækið reynist vel til að auka blóðflæði og minnka bjúg.
Infrarauður klefi
Fyrir stuttu tókum við í notkun Redfit room en það er notað sem æfingaherbergi fyrir jóga, spinning, lyftur og hugleiðslu. Í klefanum er hægt að fá nudd eða hreinlega slappa af og hreinsa hugann. Það er bæði sjónvarp og Bluetooth svo það er hægt að hlusta á tónlist, sögu eða hafa einkaþjálfarann á skjánum. Það þarf einungis að vera í 20 mínútur í klefanum til að finna áhrifin svo hann er frábær lausn fyrir þá sem eru að flýta sér. Klefinn tekur 5-8 manns sitjandi eða tvö sem liggja.
Í hitaklefanum er Far Infrared, 16 litameðferðarljós, Himalayan saltsteinar og jade náttúrusteinar en þeir eru sambland af tveimur mismunandi náttúrulegum steinefnum, annars vegar jadeite (natríum, ál og kísil) og nefrít (kalsíum, magnesíum og kísil). Kristallarnir aðstoða náttúrulega getu líkamans við að draga djúpt andann og slaka á. Þegar rakastig andrúmslofts er eðlilegt dregur loftið að sér saltagnirnar sem mýkja húðina og opna öndunarveginn. Saltið hjálpar einnig við að opna ennis- og kinnholur og stuðlar að hugarró.
Súrefnishjálmur er notaður til afeitrunar og endurnýjunar húðarinnar.
Notkun innrauðra geisla við að auka kjarnhitastig líkamans hefur jákvæð áhrif á heilsu og vellíðan auk þess sem slík meðferð hefur reynst íþróttamönnum vel til að ná auknum árangri, svokölluð hitameðferð,“ útskýrir Sandra en klefinn veitir:
■Róandi, vöðvaslakandi hugarástand
■ Brennir hitaeiningum
■Stuðlar að þyngdarmissi og minnkun á ummáli
■ Eykur blóðrás
■ Eykur súrefnisupptöku
■ Eykur brennslu
■ Eykur hreyfigetu
■ Eykur liðleika
■ Er verkjalosandi
■ Endurmótar líkamann
■ Afeitrar
■ Endurnærir húðina
■Framkallar afslöppun / veitir hugarró
■Kemur jafnvægi á kortisólmagn (kortisól er hormón sem hjálpar fólki að slaka á streitu og veitir jafnvægi)
■Stuðlar að andlegu jafnvægi og ró
■ Hjálpar við svefnleysi
■ Veitir húðinni raka
■ Hreinsar öndunarveginn
■Hjálpar árstíðabundnu ofnæmi/frjókornaofnæmi
■Hefur góð áhrif sem meðferð við berkjubólgu (sjá heimasíðu Halotherapy fyrir frekari upplýsingar)
Verndarhjúpurinn hefur slegið í gegn hjá viðskiptavinum enda býður hann upp á áhrifaríka hitameðferð.
Selur til annarra landa
Í Covid höfum við selt 30 Weyergangs tæki og Wellness-USA til Noregs og Svíþjóðar en ég er með umboðið fyrir Norðurlöndin. Ekkert lát virðist á því þar sem ég er nú þegar bókuð á fundi á nýju ári með aðilum frá Noregi. Við verðum með sölusýningu í Bergen í febrúar 2022. Rudolf Weyergans er með yfir 35 ára reynslu en hann fann til dæmis upp okkar fræga krem, styler cream, sem við köllum sogæðakrem en það er ekkert krem sem vinnur eins og það, frábært eftir aðgerðir, bjúgsöfnun, bruna, ör, appelsínuhúð eða bara til að nota sem græðandi líkamskrem. Þetta er undrakrem sem allir ættu að eiga,“ segir Sandra.
Tækin okkar eru á eftirtöldum stöðum:
■Villan Spa, Sauðárkróki
■Maríkó, Akranesi
■Ró útlits- og heilsumeðferðastofu, Njarðvík
■Weyergans Studio, Siglufirði
■Heilsuhofinu, Akureyri
■Táin og Strata, Sauðárkróki
■Mátturinn í Núinu, Eygló, Selfossi
■Nuddstofu Margrétar, Borgarnesi
■Endurheimt, sjúkraþjálfun
Heilsuhofið, er í Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Þeir sem vilja kynna sér frekar meðferðir hjá Heilsuhofinu geta haft samband í síma 7908080 eða skoðað heimasíðuna, www.heilsuhofid.is