Skilmálar og meðferð persónuuplýsinga
Neðangreindir skilmálar gilda fyrir
vefverslunina heilsuhofid.is.
Vinsamlegast kynntu þér þá vandlega áður en þú pantar vörur á www.heilsuhofid.is
Multitasking Orka ehf áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara.
Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur og eru með VSK.
Hægt er að skila eða skipta vörum innan 14 daga gegn framvísun kvittunar og að varan sé í upprunalegu ástandi ss pakkning sé órifin eða laus við aðrar skemmdir sem kunna að hafa komið eftir að varan var send af stað.
Hægt er að skipta í aðra vöru eða Inneign.
Vörur fást ekki endurgreiddar.
Þegar þú verslar á www.heilsuhofid.is getur þú valið á milli þess að sækja til okkar á stofuna eða fengið
pöntunina þína senda með Íslandspósti.
Við sendum þér vöruna/r í pósti í gegnum stærsta póstþjónustukerfi landsins, Íslandspóstur (postur.is).
Sendum með þeim líka út um allan heim.
Við leggjum metnað í að varan berist til þín í fullkomnu ásigkomulagi. Þess vegna ábyrgjumst við vandaða pökkun og frágang vörunnar áður en hún fer frá okkur.
Multitasking Orka ehf hlýtir lögum númer 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga
Multitasking Orka ehf leggur metnað í trúnað við viðskiptavini sína.
Gögn sem innihalda persónuupplýsingar eru ekki látin þriðja aðila í té.
Auk persónuupplýsinga sem þú gefur upp söfnum við líka upplýsingum sjálfkrafa með vefkökum (vefkökur eru skrár sem við sendum til tölvunnar þinnar). Við notum vefkökur aðallega til að gera heimasíðuna ánægjulegri í notkun. Þær sýna okkur líka hvað notendur skoða á síðunni okkar sem auðveldar okkur að gera hana enn þægilegri.
Þegar þú skráir þig á póstlistann okkar fer netfangið þitt á póstlista. Þú getur skráð þig af póstlistanum með því að smella á vefslóð í pósti sem sendur er á netfangið þitt.
Stundum þurfum við að fá til liðs við okkur utanaðkomandi aðila sem hjálpa okkur við að veita ákveðna þjónustu. Í sumum tilvikum þurfum við að deila með þessum fyrirtækjum upplýsingum sem þau þurfa til að geta veitt okkur og á endanum viðskiptavinum okkar, þjónustu. Við þurfum t.d. að láta flutningsaðila fá heimilisfangið þitt svo að hann geti sent vörurnar þínar heim til þín.