top of page

Sogæðastígvél

​bætir blóðflæði líkamans og vinnur um leið á að slétta húðina og minnka ummálið, samhliða því að veita sterka forvörn gegn æðasjúkdómum.

Couple's Feet in Bed_edited.jpg
61BAvAOjCXL_edited.jpg
stygvel-1.jpg
Knees_edited.jpg
Image by Anelya Okapova

Sogæðastígvél

Við sérhæfum okkur í sogæðameðferðum fyrir líkaman. Sogæðakerfið er hreinsikerfi líkamans.

Gegnum tíðna hefur orðið mikill röskun á æðakerfinu hjá fullorðnum og samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðisráðuneytinu í Þýskalandi um æðarannsóknir eru 90% allra fullorðinna með veikt æðakerfi.

Út frá læknisfræðilegum rannsóknum er óhætt að fullyrða að flestir séu með byrjunareinkenni æðasjúkdóma eins og æðahnúta, æðaslit, bólgur og bjúg.

 

Hvernig virka stigvélin? Sogæðanudd með þrýstingsstígvélum fyrir fætur og læri sem virkar þannig að loftþrýstingur er leiddur inn í stígvélin sem meðferðaraðilinn klæðist og þá myndast hið svokallaða öldurennslis- eða bylgjunudd.

Sogæða stígvélin eru mjög árangursrík og bætir blóðflæði líkamans og vinnur um leið á að slétta húðina og minnka ummálið, samhliða að veita sterka forvörn gegn æðasjúkdómum. Það vinnur ekki einungis á neðri vandamálasvæðunum eins og lærum, rassi og maga heldur er það sömuleiðis mikilvæg og áhrifarík meðferð gegn appelsínuhúð og slöppum vöðvavef á upphandleggjum.

 

Sogæðastígvélin hentar öllum bæði konum og körlum. Þau henta vel ef viðkomandi þjáist af : Fitubjúg, Sogæðabólgum, dregur úr appelsínuhúð, bjúg og minnka ummál.

Einstaklingar með fótapirring finna mikin mun og jafnframt horfið hjá sumum. Nuddar frá iljum upp í mjöðm og vekur æðakerfi líkamans. Við mælum með að til að sjá og finna góðan árangur er að koma 10-15. skipti. Til að viðhalda þeim árangri er gott síðan að koma 1x í viku.

Gott að vita: þar sem verið er að losa um bjúg og bólgur er mjög mikilvægt að drekka mikið vatn, sem jafnan flýtir fyrir hreinsunarferlinu sem var verið að vinna á.

 

Upprunni sogæðameðferðarinnar. Upprunalega eða í lok áttunda áratugsins var þróun sogæðameðferða með loftþrýstingi gerð í þeim tilgangi að meðhöndla konur sem glímdu við sogæðabjúg í holhönd eftir brjóstnám. Sú meðferð sem kallast öldurennslis- eða bylgjunudd byggist á því að mynda yfirþrýsting sem nýttur er í meðhöndluninni við sogæðabjúg.

Aðferðin virkar þannig að loftþrýstingur er leiddur inn í stígvélin sem meðferðaraðilinn klæðist og þá myndast hið svokallaða öldurennslis- eða bylgjunudd.

Strax í upphafi níunda áratugsins var farið að nota þessa gerð klofháu þrýstingsstígvéla sem meðferð fyrir fætur og læri. Aðferðin var fyrst kynnt fagfólki fyrir 25 árum og hefur hlotið mikla viðurkenningu í Þýskalandi og öðlast þar fastan sess sem á virtum heilsustofnunum þar í landi.​

bottom of page